Hvernig panta ég?

Það er einstaklega þægilegt og fljótlegt að panta vörur hjá Labrada.is. Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og við bjóðum einungis upp á traustasta merkið í heimi fæðubótarefnanna, Labrada.

Hvernig vel ég þær vörur sem ég vil kaupa?

Þú smellir einfaldlega á þá vöru sem þú vilt skoða, velur svo bragðtegund, stærð og fjölda eftir því sem hentar, og smellir svo á "setja í körfu”. Að því loknu getur þú valið um að fara til baka í verslun og bæta fleiri vörum við, eða smella á "Kaupa”, sem fer með þig á næsta skref þar sem gengið er frá pöntuninni.

Hvernig fæ ég vörurnar afhentar?

Við hjá Labrada.is sendum vörur okkar hvert á land sem er, alla jafna strax við staðfestingu pöntunar en alltaf innan 24ra tíma frá pöntun. Hægt er að fá vörurnar sendar með Íslandspósti, hvort sem er í póstkröfu eða fyrirframgreitt með millifærslu. Einnig er hægt að sækja vörurnar til okkar á mánudögum og fimmtudögum milli kl 17 og 19 en afhendingarstaður er Hálsaþing 5, 203 Kópavogi. Óskir þú eftir því að sækja vörurnar á öðrum tíma endilega hafðu samband – við erum við mjög svegjanleg.

Hvernig greiði ég fyrir vörurnar?

Nokkrir greiðslumöguleikar í boði. Séu vörurnar sendar í póstkröfu þá greiðir viðskiptavinur fyrir vörurnar við móttöku hjá Íslandspósti. Sé óskað eftir að vörurnar séu sendar heim og griett sé með millifærslu, þá þarf millifærsla að eiga sér stað að lokinni pöntun – að lokinni millifærslu eru vörurnar sendar strax af stað.

Séu vörurnar sóttar til okkar, þá er annaðhvort hægt að greiða í reiðuðfé, eða með millifærslu.

Hvenær fæ ég vörurnar afhentar?

Vörur sem eru pantaðar hjá Labrada.is er yfirleitt hægt að fá afhendar samdægurs. Vörur sem eru sendar með Íslandspósti eru alla jafna 1-3 virka daga að berast.